Umhverfi


Tjaldsvęši


Gisting


Veiši


Matur


Golf








Garðavöllur undir jökli er 9 holu golfvöllur sem rekinn er í tengslum við gistihúsið Langaholt. 
Völlurinn er par 35 og var á sínum tíma hannaður af Hannesi Þorsteinssyni Golfvallararkitekt, og var fyrst opnaður í ágúst 1997, vígður og blessaður af séra Guðjóni Skarphéðinssyni.

Túnið sem golfvöllurinn er staðsettur á er sandtún, myndað af gulum foksandi sem hefur fokið upp af ströndinni í aldanna rás og hlaðist smá saman í aflíðandi hæðir sem hafa svo gróið upp með tímanum  og er sérlega hentugt undir golfvöll. 

Það má einnig geta þess að gömlu skosku  "Links" vellirnir eru á mjög svipuðu landi. 
 



Gjaldskrá fyrir árið 2006 er eftirfarandi:
Daggjald

 
Almennt
2.000
Hjón
3.000
Unglingar
1.000
Dvalargestir almennt
1.500
Dvalargestir hjón
2.500
Dvalargestir unglingar
800


Garðavöllur undir jökli er einn af fáum golfvöllum sem eru einkareknir á Íslandi en engu að síður hafa heimamenn stofnað sinn eigin golfklúbb Sem heitir því virðulega nafni "Golfklúbbur Staðarsveitar" og voru meðlimir 8 talsins árið 2000, sem var fyrsta starfsár klúbbsins. 


Hafšu samband






Webmaster