Umhverfi


Tjaldsvęši


Gisting


Veiši


Matur


Golf




Hérna er hęgt aš sękja sér AVI myndbrot śr umhverfi okkar.
Ströndin (2,9MB) og Sjóndeildarhringurinn (5,9MB)

Í gistihúsinu Langaholti er góð aðstaða til að eyða frídögunum sínum þægilega miðsvæðis á Snæfellsnesi. Golfvöllur er við gistihúsið Langaholt ásamt  sparkvelli og stutt niður á strönd. 

Mikið fuglalíf er á staðnum og má segja að um hreina paradís sé að ræða fyrir náttúruunnendur og göngufólk.
 
Fyrir hestamenn er 3ja hólfa hestagirðing með gerði. Í grenndinni eru svo hestaleigur á Lýsuhóli og örstutt í lax og silungsveiði veiði í vatnasvæði lýsu og í silungsveiði Vatnsholtsvatni um 5 km frá gistihúsinu.

Sundlaug er á Lýsuhóli en þangað er 5 mín akstur. Þá eru einungis um 30 km að Snæfellsjökli þar sem hægt er að fara í jöklaferðir á vegum ferðaþjónustunnar Snjófells.

Hvalaskoðunarferðir og sjóstangveiði eru frá Ólafsvík sem er um 20 mín akstur frá Gistihúsinu Langaholti og ekki má gleyma hinum rómuðu eyjaferðum á Breiðafirði.

Starfsfólk gistihússins kappkostar að vera gestum innan handar við að panta hjá þessum samstarfaðilum okkar á svæðinu.

Hafšu samband




Webmaster