Umhverfi


Tjaldsvæði


Gisting


Veiði


Matur


Golf


German




Gistihúsið Langaholt er staðsett miðsvæðis á sunnanverðu Snæfellsnesi, við bæinn Garða í sveit þeirri er áður hét Staðarsveit en er núna hluti Snæfellsbæjar. Svæðið umhverfis er sannkölluð náttúruperla, tignarlegur fjallgarður, jökullinn í allri sinni dýrð, gullin strönd við faxaflóann og stjörnubjartur himinn með norðurljósatrafi þegar skyggir.



Ekki þurfa ferðalangar að sitja auðum höndum, golfvöllur er við gistihúsið, vatnasvæði Lýsu steinsnar frá, einungis 5 km í Lýsuhólslaug og hestaleigu á lýsuhóli og fleira mætti telja. Frá Langaholti er líka upplagt að bregða sér upp á Snæfellsjökul eða í hvalskoðun eftir því sem fólki hentar, allt er þetta í seilingarfjarðlægð.



Hellissandur 42 Reykjavík 160
Ólafsvík  34 Akureyri 406
Stykkishólmur 57 Blönduós 260
Borgarnes 89 Sauðárkr. 215
Búðardalur 112 Selfoss 220
Akranes 128 Seyðisfjörður 713(n) 944(s)




Sími: 4356789
Fax: 4356889

Hafðu samband

Til að fá sögu gistihússins gefum við Svövu húsfreyju orðið: 1978. Byrjuðum við með eitt 2ja manna herb uppi á lofti í íbúðarhúsinu. Í þá daga var fátt um gesti, en það jókst fljótlega og allt voru þetta útlendingar.

Uppúr ´80 löguðum við gamla íbúðarhúsið og seldum þar gistingu en það varð fljótt of lítið og 1984 var fyrsti áfangi í núverandi gistihúsi byggður og tekinn í notkun vorið ´85, eldhús, setustofa, snyrtingar, þrjú stór fjölskylduherb. og eitt tveggja manna. Næsta vetur var innréttað loftið í fjölskilduherb. og svefnloft. ´87 var svo byggt við matsalur, tvö herb. forstofa, snyrtingar og eldhús en eldra eldhúsið varð til afnota fyrir gesti. ´89 bættist við þriðji áfangi með 5 herb. þar af eitt með snyrtingu. ´94 var opnað tjaldstæði með tilheyrandi salernisaðstöðu, en í nokkur ár áður hafði fólk fengið að tjalda á túninu en notað aðstöðu í gistihúsinu.

Vorið ´96 byggðum við 8 herb. í viðbót og tókum þau í notkun um miðjan júlí það ár og þau eru öll með baði. Veturinn eftir voru svo settar snyrtingar inn í nokkur herb. úr þriðja áfanga svo nú eru alls 12 herb. með baði en heildarfjöldi herb. í gistihúsinu er 21. Rekstur gistihússins er kominn í nokkuð fastar skorður, elsti hluti þess er að mestu leiti selt út sem svefnpokapláss, maturinn sem er í boði er rammíslenskur af hlaðborði sem gleður margan svangan ferðamanninn, en bjór og vín fæst með.

Í tengslum við gistihúsið var opnaður 9 holu golfvöllur sumarið ´97 og er hann talsvert notaður og er kærkomin viðbót við afþreyinguna sem í boði er á staðnum. Á þessum rúmlega tuttugu árum hefur margt breyst, nú orðið er mikið um íslendinga sem eru orðnir fastagestir, nokkrir eiga sínar helgar sumar eftir sumar og þónokkuð er um fjölskildumót og starfsmannafélög. Þetta er afar skemmtileg atvinna, við fáum næstum eingöngu indælisfólk og eignumst marga vini og kunningja.







Webmaster